Auglýsing

Romo

04. nóvember 2008 klukkan 09:42
Jaeja tha erum vid omar komin i romantiska ferd hingad til finnlands og kurum okkur vid arineldinn a hreindyraskinni a kvoldin... Bordum hreindyrakjot med godu vini og creme bru le (eda hvernig sem madur skirfar tahd) i eftirrett...

NOT!

Komin til Finnlads.. Og ekki nog med thad tha er eg i Lapplandi.. kaldasta stadnum i finnladi.. Buin ad vera med stiflad nef sidan eg kom hingad tar sem vid thurfum alltaf ad labba i og ur skolanum svona 10 km! Snilld!

Ekkert hreindyrakjot, bara mcdonalds tvi tad er odyrast.. Ekki gott vin heldur odyr og vondur bjor a heldur furdulegum stodum..

Enginn omar sem heldur mer hita a kvoldin vid arinedlinn heldur bara tyri sem sefur med mer i goth herbergi i furdulegustu ibud sem eg hef komid i hja ljotasta pari sem eg hef augum litid.. Og thau eru alltaf ad kela! Snilld once again!

En tratt fyrir thetta allt er mjog gaman og a laugardaginn erum vid ad fara ad heimsækja jolasveininn thvi hann byr herna i romanievie.. Enda er eins og jolin hafi kastad upp herna i bænum, og tad er november!

En hlakka til ad koma heim og hitta ykkur dullur!
Miss you!
Kara 
Kara Hergils Valdimarsdóttir
2 athugasemdir

Finlandia...

30. október 2008 klukkan 19:38
Heil og sæl börnin mín..

Ég og bekkurinn minn erum að fara til finnlands á sunnudaginn, atburður sem við erum búin að grenja okkur í svefn núna í tvær vikur.. Fórnuðum vetrarfríinu okkar til að fara á digital art workshop í 30 stiga frosti, við og nokkrir finnskir nördar.. Snilld! Svo fengum við þær upplýsingar um það í dag að við ættum að hafa tilbúið 5 mín presentation um einhvern sem inspire-rar okkur.. Og hvað? Powepoint glærur eða? Er þá ekki svoldið slappt að koma á digital art media workshop með office powepoint glærur?

Berglind ætlar að vera rebel og mæta nakin á svæðið með bjór að vopni.. Ásrún ætlar að skrifa í flugvélinni.. Litla samviskusama stelpan.. Mín hernaðaráætlun er sú að halda mér bara hjá Sönnu (finska stelpan í bekknum) þykjast ekkert skilja og nota hana sem túlk.. Múhahah!

Ég reyndi að blogga um eitthvað annað en skólann.. En það bara gerist ekkert meira í lífinu mínu en hann..

.. Ég laug.. Bíllinn minn bílaði í dag.. YET AGAIN! Viva Perla!

Kv.
Kara

Þetta kom þegar ég googlaði Finland.. Það verður komin önnur svona af Berglindi eftir viku á google.. Stay tuned!

Kara Hergils Valdimarsdóttir
2 athugasemdir

Cry baby..

28. október 2008 klukkan 19:42
Jæja ætla nú að reyna halda lífi í þessu bloggi en ekki láta það deyja eins og svo oft áður..

Er sem sagt á lífi þrátt fyrir að ég sé búin að grenja meira á síðustu tveimur dögum en ég hef alla mína ævi.. Og gæludýrið mitt var ekki að deyja.. Nei þegar talað er um "starving artist" þá er sko verið að tala um sult á ást.. Fer ekki nánar út í það.. Sem betur fer er ég ekki listamaður þegar ég kem heim og fæ ástina mína þar! :D

Ætla líka að fá hana (ástina) í kvöld hjá Evu og Erlu í kósýtime á vegamótum.. Þær eru að fara í heimsreisu litlu international pussies! Ég ætlaði einmitt með í þá heimsreisu en beilaði.. Surprise! Stendur í útskriftarbókinni minni við skopmyndina "heimsreisa 2008".. Vandræðalegt..

Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þó ég hafi nokkrar góðar sögur í pokahorninu.. Bíður betri tíma þegar þessi steik sem hefur myndast í höfðinu á mér grillast og einhver getur borðað hana frá mér! (vá þetta var ekki fyndið!)

kv Kara
Kara Hergils Valdimarsdóttir
Engin athugasemd

Barnið mitt...

24. október 2008 klukkan 21:47
Í dag var ég eins og nýbökuð móðir sem þráði ekkert heitar en að fara heim til baby... Ég nefninlega hlakkaði svo til að koma heim að skoða hvort eitthvað hafði gerst á nýja blogginu mínu! Það vakti því mikla hamingju hjá mér að sjá kommentin frá ykkur elsku dúllur :D

Í dag fór ég skólan eftir að vera búin að vera veik í þrjá daga sem var leiðinlegra en að horfa á beuty and the geek á föstudagskvöldi.. Tilhlökkunin var því rosaleg að demba mér aftur í vinnu og gera eitthvað að viti... Í öðrum tíma dagsins (og ég er í skólanum frá 8-6) tókst mér að reka fokkjú puttan í og mér hefur verkjað í hann í allan dag.. Snjeeeeeeeeelld, eins og við tapparnir í skólanum myndum orða það..

Þess vegna ætla ég að liggja heima í kvöld með spelku á puttanum og hugsanlega nammi ef ég ætla gjörsamlega að sleppa beislinu af dýrinu sem ég er!




Tók mynd af mér í tölvunni..

Kergils out! 
Kara Hergils Valdimarsdóttir
7 athugasemdir

Pilot

23. október 2008 klukkan 14:10
Jæja núna ætla ég að byrja að blogga svo að ég drepi mig nú ekki úr leiðindum hérna í flensunni minni nr 2 á þessari önn! Það er snilld... Ég velti mikið fyrir mér hvernig bloggið mitt ætti að vera.. Ætla ég að segja sögur eins og hann Pálmar vinur minn sem á hið víðfræga blogg palmar.leti.is og verða legend eins og hann..? Eða ætla eg að vera eins og Begga bjútí bekkjarsystir sem dælir inn einkahúmor á sína síðu sem gerir manni kleypt að míga á sig af hlátri eftir hvern skoladag?

Svo fann eg mitt þema! Hvað er meira Kara Hergils en hrkafallasögur?? Nú þyki ég einkar óheppin og klaufsk á tímabilum og þess vegna á ég einmitt ógrynni af slíkum sögum. Kannski lýsandi því að ég sé að skirfa mína fyrstu færslu ekki úr minni eigin tölvu heldur nappaði ég mér einni af þeim 7 sem heimilið prýða. Svo er nefnilega mál með vexti að sjálfskipað viðurnefið mitt er Kara tölvubani.

Einu sinni þegar ég var mega pæja í versló gaf pabbi mér ferðatölvu til að nota í skólann. Ég gerði það samviskusamlega enda algjört skilyrði fyrir því að hann gæfi mér tövlu. Það gekk svo vel að ég varð íslandsmeistari í bubbel og féll á 4. bekk í versló sem ég þurfti að því að taka tvisvar sinnum..... Seinna árið tók ég tölvuna ekki með í skólann. Þá var hún alltaf góður vinur sem maður kom heim til og kúrði jafnvel með eftir skóla.. Það var einmitt einn þriðjudaginn sem ég kom úr skolanum og tók eina góða siestu með tölva litla en vaknaði af martröð með svo miklum látum að ég henti tölvunni, sem þá svaf vært á bumbunni minni, hátt upp í lfotið og svo beint á hart parkettið hjá mér... Þá var sú tölva dauð.. Þá var lítið annað í stöðunni en að stela tölvunni hans pabba það sem eftir var menntaskólagöngu og frá því er gaman að segja að ég held að mér hafi tekist að láta tölvuna hrynja 7 sinnum á þeim tíma. Loksins þegar ég kláraði Versló var móðir mín svo yndisleg að gefa mér mac í útskriftargjöf.. Takk mamma! Hefur komið sem vel síðan ég byrjaði í Listaháskólanum að eiga svona arty tölvu (eða þið vitið gott að taka myndir af sér í photo booth og setja á facebook).

Svo síðasta sunnudag áður en ég fór með pabba í óperuna fékk ég þann innblástur að dansa aðeins í stofunni.. Fékk Þór að sjálfsögðu með mér í þá vitleysu og var mikið gaman í um það bil 19 sek.. Það var þangað til að okkur tókst að hella pepsi glasi yfir nýju tölvuna mína sem að sjálfsögðu bræddi úr sér og eyðilaðist eins og í the aprantice... Þannig Kara has done it yet again.. Kara tölvibani, out!

Kara Hergils Valdimarsdóttir
6 athugasemdir